Hljóðráðgjöf
Myrra veitir alhliða þjónustu á sviði hljóðvistar.
Áhersla er lögð á samvinnu við aðra hönnuði.
Nýbyggingar
Hljóðhönnun allra tegunda nýbygginga.
Með hljóðráðgjafa í hönnunarteymi frá upphafi hönnunar fæst grunnur að góðri hljóðvist byggingar.
Endurbætur
Hljóðráðgjöf við endurbætur af öllum stærðum og gerðum.
Árangur endurbóta getur margfaldast með réttu efnisvali og uppbyggingu byggingarhluta.
Skipulag
Á skipulagsstigi er mikilvægt að meta hávaða frá umferð með útreikningum. Einnig er mögulegt að hanna mótvægisaðgerðir til lækkunar á umferðarhávaða sé þess þörf.
Iðnaður og atvinnustarfsemi
Með útreikningum má kortleggja og meta hávaðadreifingu frá flestum hávaðauppsprettum í umhverfinu. Einnig er mögulegt að hanna mótvægisaðgerðir til lækkunar á hávaða sé þess þörf.